Starfsmenn á einstaklingssviði VÍS brugðu út af venju og slepptu því að gefa hver öðrum jólapakka á litlu jólunum 2016 en lögðu í staðinn í sjóð.
Framlagið var frjálst og það söfnuðust 65 þúsund krónur sem ákveðið var að færa Barnaspítala Hringsins. Þau María Kristinsdóttir og Jóhann Stefánsson, starfsmenn á einstaklingssviðinu, mættu á leikstofu Barnaspítalans 29. desember og afhentu gjöfina.
Leit
Loka