Arnar Þór Rafnsson hjartalæknir, Berglind Libungan hjartalæknir og Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómalæknir urðu fyrir valinu í árlegu vali deildarlækna lyflækningasviðs á sérfræðilæknum sem þeir telja hafa skarað fram úr í klínískri kennslu. Framantaldir fengu þessi verðlaun á jólaföstu 2016.
Deildarlæknum er nauðsynlegt að njóta reynslu og hæfni þeirra sem eldri eru í starfi og leiðsögn þeirra því dýrmæt. Viðurkenninguna má skoða í því ljósi.
(Arnar Þór var fjarstaddur í myndatöku)