Takmarkaðar fjárveitingar til viðhaldsframkvæmda á Landspítala valda því að ekki hefur verið unnt að sinna öllu því viðhaldi sem þörf er á.
Húsnæði spítalans er víða mjög illa farið og þarfnast sárlega endurbóta eða endurnýjunar.
Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítala, segir hér frá viðhaldverkefnum sem unnið hefur verið að eða eru framundan.