Jólastund var á leikstofunni á Barnaspítala Hringsins 14. desember 2016.
Þórir hljómborðsleikari og Viðar gítarleikari og söngvari voru mættir á jólastundina á leikstofunni eins og þeir hafa gert 6 undanfarin ár. Jólasveinninn fór líka mikinn með Vigfúsi prest á barnaspítalanum sem meðhjálpara. Sveinki átti að vísu svolítið bágt þannig að hann þurfti á læknishjálp að halda. Fleiri starfsmenn og stjórnendur á barnaspítalanum brugðu sér í hinum ýmsu hlutverk og börnin og aðstandendur þeirra skemmtu sér hið besta. Hringskonur buðu svo á eftir upp á hressingu.