Óskað er eftir tilnefningum til verðlauna úr Verðlaunasjóði Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar. Verðlaunin nema kr. 5.000.000.
Verðlaunin veitast vísindamönnum, sem náð hafa framúrskarandi árangri í vísindarannsóknum í læknisfræði, lífvísindum eða skyldum greinum.
Tilkynnt verður um verðlaunahafa á Vísindum á vordögum Landspítala vorið 2017.
Tilnefningar þurfa að hafa borist stjórn sjóðsins fyrir 31. janúar 2017.
Stjórn Verðlaunasjóðs Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar
Hellulandi 10
Reykjavík 108
thordhar@landspitali.is