Í ályktun læknaráðs Landspítala 23. nóvember 2016 um Heilsugátt og rafræna sjúkraskrá segir m.a.: „Læknaráð Landspítala hvetur til áframhaldandi þróunar á Heilsugátt sem miðlægum grunni í uppbyggingu sjúkraskrárviðmóts sjúkrahússins. Það er álit stjórnar læknaráðs að auka þurfi verulega fjárframlög til þróunar sjúkraskrár Landspítala og samræmdrar sjúkraskrár á landsvísu. Skilvirkt sjúkraskrárkerfi stuðlar að bættri heilbrigðisþjónustu og eykur öryggi sjúklinga.“
Ályktun um Heilsugátt og sjúkraskrá Landspítala pdf