„Blóðskimun til bjargar “ er yfirskrift viðamestu rannsóknar sem ráðist hefur verið í hér á landi, þjóðarátaki gegn mergæxlum sem hófst formlega 15. nóvember 2016. Öllum fæddum 1975 eða fyrr er boðið að taka þátt. Þetta er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Landspítala og Krabbameinsfélags Íslands. Að auki eru flestar rannsóknarstofur og blóðtökustaðir á Íslandi í samstarfinu og þannig er leitast við að tryggja að allir sem vilja taka þátt í þessu umfangsmikla verkefni, hvar sem er á landinu, geti það.
Markmið rannsóknarinnar er að meta hvort ávinningur sé af því að skima fyrir forstigi mergæxlis (MGUS). Árangur rannsóknarinnar byggist á góðri þátttöku en þannig er vonast til þess að fá fá svör við fjölmörgum mikilvægum spurningum, meðal annars um orsakir mergæxla, ávinning skimunar, besta greiningarferli og áhrif krabbameinsleitar og skimunar á lífsgæði fólks. Einnig er ætlunin að rannsaka hvort unnt sé að lækna mergæxli með því að greina það snemma og þar með meðhöndla fyrr en nú er gert.
Ítarlegar upplýsingar um rannsóknina má finna á www.blodskimun.is