Starfsmenn gæðasviðs Alvotech á Íslandi gáfu barnadeild 22ED ipad. Tinna Madsen, Quality Operations Director og Andrés Nielsen, Quality Management Team Leader, frá gæðasviði Alvotech á Íslandi ásamt Oddnýju Kristinsdóttur, hjúkrunarfræðingi og verkefnastjóra á barnadeild 22ED.
Starfsmenn frá gæðasviði Alvotech á Íslandi komu færandi hendi nú í haust 2016 og gáfu barnadeild 22ED á Barnaspítala Hringsins iPad Pro.
Sá er einkar glæsilegur og mun nýtast í fræðslu til skjólstæðinga deildarinnar, í athyglisdreifingu og almenna afþreyingu fyrir börnin. Gefendunum voru færðar þakkir fyrir framtakið.