Frambjóðendur í kosningunum til Alþingis hafa lokið við að kynna stefnumál sín starfsmönnum á Landspítala, í það minnsta á skipulögðum fundum innan stofnunarinnar. Seinni kynningarfundur þeirra var í matsalum við Hringbraut í hádeginu föstudaginn 28. október 2016. Frambjóðendurnir héldu fyrst stutta framsögu og svöruðu síðan fyrirspurnum. Þar með er kosningabaráttunni að ljúka því kosið verður laugardaginn 29. október.
Leit
Loka