Líknardeild Landspítala Kópavogi hefur fengið að gjöf stiga sem sjúklingar nota við þjálfun. Gefandi er Tækniskólinn en stigann smíðaði Egill Óskar Gíslason, ásamt kennurum sínum, en hann hefur nú lokið námi í húsasmíði við skólann. Fleiri deildir við skólann komu einnig að smíðinni.
Gjöfin var afhent 12. október 2016 og fjallað var um þetta í Fjarðarfréttum 20. október.
Mynd: Egill Óskar Gíslason og Gunnlaugur Már Briem.