Hringbrautarverkefnið um endurnýjun á húsnæði Landspítala er til umfjöllunar í sérblaði Fréttablaðsins 24. október 2016. Útgefandi er Nýr Landspítali ohf. Í blaðinu er talað við marga sem komið hafa að þessu verkefni fyrr og nú, stjórnmálamenn og hönnuði auk stjórnenda bæði á Landspítala og í háskólunum í Reykjavík.
Fulltrúar framboða til Alþingis lýsa líka sinni sýn á uppbyggingu þjóðarsjúkrahússins við Hringbraut.