Vona að það megi auglýsa eftir þátttakendum í rannsókn hér en ef ekki þá kannski á facebook síðunni?
Guðrún Kristín gudrks 5438410
Leitað er eftir konum á aldrinum 18-40 ára til að taka þátt í rannsókn CYCLES á Íslandi.
Rannsóknin beinist að misháum styrk hormóna og hvernig hann tengist aukinni áhættu á ákveðnum sjúkdómum (svo sem brjóstakrabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum) og gæti haft áhrif á virkni ónæmiskerfisins og aðra þætti í almennri vellíðan.
Þær sem geta boðið sig fram til þátttöku (fullorðnar konur eingöngu)
- eru á aldrinum 18-40 ára.
- eru af íslenskum eða evrópskum uppruna.
- nota ekki núna (eða hafa notað undanfarna þrjá mánuði) hormónagetnaðarvarnir eða steralyf.
- eru ekki núna (eða hafa verið undanfarna þrjá mánuði) ófrískar eða með barn á brjósti.
- eru ekki núna á sérstöku mataræði með það fyrir augum að léttast eða þyngjast.
- stunda ekki núna þjálfun sem atvinnufólk í íþróttum (reglubundin líkamsrækt er hið besta mál).
Nánari upplýsingar á vef Háskóla Íslands hjá Rannsóknastofu í næringarfræði