Að lifa og deyja í sársauka – Það þarf ekki að vera raunin (Living and dying in pain: It doesn´t have to happen) er yfirskrift alþjóðlegs dags líknarmeðferðar 8. október 2016 en hann er haldinn ár hvert með ákveðinni yfirskrift.
Tilgangurinn með deginum er að vekja athygli og auka skilning á líknarmeðferð og styðja við þá meðferð á alþjóðavettvangi.
Í tilefni af alþjóðlegum degi líknarmeðferðar er verið að vinna að heildaruppfærslu og endurskoðun á vef Lífsins – samtaka um líknarmeðferð. Nýr og endurbættur vefur verður tekinn í notkun nú í októbermánuði.
Samtökin hvetja heilbrigðisstarfsfólk til þess að kynna sér hugmyndafræði líknarmeðferðar enn frekar. Aukin þekking á líknarmeðferð og efling líknarmeðferðar stuðli að betri þjónustu við öll þau sem haldin eru lífsógnandi sjúkdómum sem og fjölskyldur þeirra.