Margrét Pálsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á svæfingardeildinni á Landspítala Hringbraut frá 1. september 2016.
Margrét lauk námi í hjúkrunarfræði frá Hjúkrunarskóla Íslands 1982, viðbótarnámi í svæfingarhjúkrun frá Nýja hjúkrunarskólanum 1986, B.S. námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 2001 og diplómanámi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu árið 2012.
Margrét hefur starfað við svæfingarhjúkrun frá árinu 1988 og verið aðstoðardeildarstjóri svæfingardeildarinnar síðastliðin 13 ár.