Innkeyrsla að Landspítala á Hringbraut verður opnuð frá Barónsstíg að nýju miðvikudag kl. 11. Um leið opnar inngangur að K-byggingu.
Í upphafi ársins var hafist handa við byggingu á sjúklingahóteli á lóð Landspítala við Hringbraut. Endurbætur hafa staðið yfir á götunni frá Barónsstíg að aðalinngangi spítalans síðustu mánuði. Um leið og innkeyrslan verður opnuð að nýju mun fyrsta áfanga uppbyggingar við Hringbrautina verða fagnað.
Boðið verður upp á veitingar í K-byggingu af tilefni opnunarinnar.
Myndir frá innkeyrslunni og stöðu framkvæmda 16. september 2016.