Svæfingadeildir eru við skurðstofueiningarnar í Fossvogi og við Hringbraut. Auk skurðstofanna sinna þær einnig m.a. röntgen-, geð-, bráða- og hjartadeildum ásamt mörgum sérhæfðum verkefnum á ýmsum sviðum spítalans svo sem verkjameðferð, ísetningu æðaleggja og endurlífgun.
Ólöf Viktorsdóttir, yfirlæknir á svæfingadeild í Fossvogi, og Ásgeir Valur Snorrason svæfingahjúkrunarfræðingur segja í myndbandinu frá starfsemi deildarinnar þar.