Stjórn Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn skal styrkja skurðmeðferð brjóstakrabbameins við Landspítala og verða umsóknir að taka mið af því.
Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins og skipulagsskrá má nálgast á vefsíðunni www.maggaodds.is.
Upphæð styrks sem sótt er um skal rökstudd.
Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 króna samtals og ákveður stjórn einstaka styrkupphæðir sem geta numið allt að 1.000.000 króna..
Stjórn sjóðsins metur umsóknir og áskilur sér rétt til að leita eftir frekari upplýsingum en fram kunna að koma í umsókn.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi til formanns stjórnar minningarsjóðsins, Hauks Oddssonar fyrir 20. september 2016 á tölvupóstfangið ho@borgun.is