Dauðhreinsunardeild Landspítala er starfrækt að Tunguhálsi 2. Þar eru verkfæri fyrir skurðdeildir og almennar deildir spítalans dauðhreinsuð. Þar er einnig framleiðsla og pökkun á margnota taui og einnota vörum.
Í myndbandinu er talað við Elínu Ýri Halldórsdóttur um starfsemina.