Vinsamlega birta á heimasíðu og facebook síðu LSH. Kv, Margrét Ásgeirsdóttir deildarstjóri skilunardeild
Rebekkustúka nr. 4, Sigríður, I.O.O.F færði skilunardeild Landspítala að gjöf Motomed rúmhjól vorið 2016. Rúmhjól má nota meðan sjúklingar liggja í rúmi eða sitja í stól og gefst þeim þannig kostur á að nota tímann meðan á blóðskilun stendur til æfinga. Hjólin eru þannig gerð að þau gagnast bæði sjúklingum með mikla eða litla hreyfifærni. Undanfarin ár hafa Oddfellowkonurnar stutt dyggilega við skilunardeildina með margvíslegum gjöfum sem nýst hafa starfseminni vel.