Gámaskrifstofur á Landspítala Fossvogi verða staðsettar við bakinngang E-álmu. Vegna framkvæmda verða nokkur bílastæði lokuð á þessu svæði fram í október 2016.
Framkvæmdir eru að hefjast við byggingu gámaskrifstofa við Landspítala Fossvogi. Vegna þeirra þarf að loka hluta af bílastæðum austan við E-álmuna.
Lokunum verður reynt að halda í lágmarki og miðað við framkvæmdir á hverjum tíma. Framkvæmdatíminn er áætlaður 9. ágúst til 7. október 2016.