Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala auglýsir lausan til umsóknar einn styrk til doktorsnáms tengdan Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum (RHLÖ).
Styrkurinn er opinn í þeim skilningi að hann einskorðast ekki við öldrunarrannsókn Hjartaverndar (Age, Gene/Environment Susceptibility-Reykjavik Study: multidisciplinary applied phenomics. Harris TB, Launer LJ, Eiriksdottir G, Kjartansson O, Jonsson PV, Sigurdsson G, Thorgeirsson G, Aspelund T, Garcia ME, Cotch MF, Hoffman HJ, Gudnason V. Am J Epidemiol 2007;165(9):1076-87, en slík tengin er þó ekki heldur útilokuð, en einskorðast við doktorsnema á öldrunarfræðasviði í víðum skilningi.
Doktorsneminn fær starfsaðstöðu við Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum og skilyrði fyrir veitingu styrks er að rannsóknin sé unnin að stofni til á RHLÖ. Styrkurinn nemur 265.000 krónum á mánuði í þrjú ár.
Doktorsnemi og leiðbeinandi geta komið frá hvaða námsbraut sem er innan Háskóla Íslands eða sambærilegri íslenskri háskólastofnun. Doktorsneminn þarf að leggja fram rannsóknaráætlun sem miðast við form umsókna fyrir vísindastyrki Landspítala. Auk þess þarf að liggja fyrir samþykkt um doktorsnám frá viðkomandi háskóladeild. Doktorsnám sem þegar hefur verið hafið skal ekki vera lengra komið en sem nemur um það bil fjórðungi verkefnis.
Leiðbeinendur doktorsnema geta sótt um styrk fyrir doktorsnemaverkefni með því fororði að doktorsneminn taki við verkefninu innan sex mánaða frá veitingu styrks.
Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala vill efla doktorsnám á sviði öldrunarfræða með ofangreindum hætti með árlegum styrkveitingum. Þannig er vonast til að lifandi samfélag myndist um öldrunarrannsóknir þar sem doktorsnemar geta haft stuðning hver af öðrum auk góðrar starfsaðstöðu.
Umsóknir verða metnar af sjálfstæðri vísindanefnd.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2017.
Frekari upplýsingar veitir Pálmi V. Jónsson prófessor, formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, sími 543 9410, netfang: palmivj@landspitali.is
Senda skal umsókn á netfangið palmivj@landspitali.is