Neyðarmóttaka Landspítala hefur undanfarin ár átt ágæta samvinnu við mótshaldara og ýmsa aðila sem komið hafa að mannamótum og skemmtanahaldi, m.a. um verslunarmannahelgar. Þessi samvinna hefur falist í fræðslu um verklagsreglur, viðbrögð og þjónustu Neyðarmóttöku við brotaþola kynferðisafbrota. Þá hefur verið samráð við heilbrigðisstarfsfólk á hverjum stað, sem og löggæsluaðila, svo unnt sé að tryggja brotaþola skjóta þjónustu og varðveislu sakargagna. Ekki hefur borið skugga á þetta samstarf.
Árið 2002 var skipaður starfshópur af þáverandi dómsmálaráðherra sem yfirfór reglur og lagaumgjörð varðandi útihátíðir og lögð var fram skýrsla með tillögum og ábendingum um atriði sem betur mætti fara í því skyni að auka öryggi samkomugesta á útihátíðum. Landspítali gerir ráð fyrir að farið sé að þessum tillögum og ábendingum á þeim úthátíðum sem boðaðar hafa verið. Ekki er á færi Landspítala að meta viðbúnað að öðru leyti en því sem að lýtur að heilbrigðisþjónustu eins og að framan greinir. Því telur Landspítali ekki ástæðu að frekari aðkomu Neyðarmóttöku að Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Landspítali mun eftir sem áður veita ópersónugreinanlegar upplýsingar um mál sem til Neyðarmóttökunnar rata, sé eftir eftir þeim leitað.
(Tilkynning frá Landspítala)