Komið er að flutningi vísindadeildar og heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands úr Eirbergi en mikil mygla fannst í húsnæðinu árið 2015 og hefur hluti húsnæðisins verið lokaður síðan þá. Starfseminni hefur verið fundinn staður að Rauðarárstíg 10, annarri hæð.
Lokað verður meðan flutningar standa yfir, frá 21. júní, og opnað í nýrri aðstöðu mánudaginn 27. júní.