Starfsmannafélag Landspítala stóð fyrir árlegum fjölskyldudegi sem að þessu sinni var haldin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Margt var um manninn en að sögn Egil T. Jóhannssonar formann starfsmannafélagsins voru alls grillaðar 540 pylsur.
Starfsmannafélag Landspítala stendur fyrir ýmsum viðburðum í sumar og ætlar m.a. að grilla á 10 starfsstöðum spítalans. Jónsmessugangan verður á sínum stað og haustganga sem verður að venju sniðin að fjölskyldunni.