„Að sjálfsögðu ætlum við að taka dolluna“, segir Flosi Helgason sem var á þriðja áratug vaktmaður á Landspítala og tók í þátt í Norrænu sjúkraleikhúsleikunum nokkrum sinnum. Núna eru þessir norrænu leikar haldnir í Reykjavík. Þeir hefjast í vikunni og enn tengist Flosi leikunum, verður núna í dómgæslu. Flosi er í fótboltaliði Old Boys Þrótti en fótboltinn verður á Þróttaravellinum. Í því liði er líka Kolbeinn Reynisson sem vann bæði í tölvuverinu og á sýklafræðideild. Kolbeinn hefur, eins og Flosi, keppt á Norrænum sjúkrahúsleikum með góðum árangri.
Leit
Loka