María Heimisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala til næstu 5 ára. Fjármálasvið sinnir m.a. áætlanagerð, starfsemisgreiningum, innkaupum, birgðahaldi, launavinnslu, reikningshaldi og fjárstýringu Landspítala.
María lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1990. Hún stundaði framhaldsnám í lýðheilsufræðum og stjórnum heilbrigðismála í Bandaríkjunum og lauk MBA prófi frá University of Connecticut 1997 og doktorsprófi frá University of Massachusetts árið 2002. Hún starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá 1999 til 2002 þegar hún hóf störf á Landspítala. Hún sinnti sérverkefnum fyrir framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra fjármála árin 2003-2006, einkum á sviði rafrænnar sjúkraskrár og klínískra framleiðslumælinga. María leiddi hagdeild Landspítala frá árinu 2006 en hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs frá árinu 2011.
María er klínískur lektor við læknadeild Háskóla Íslands og hefur birt vísindagreinar í innlendum og erlendum fræðiritum, sinnt akademískum leiðbeinanda- og prófdómarastörfum og stundað kennslu á sviði stjórnunar, lýðheilsu og klínískrar upplýsingatækni, m.a. í læknadeild og félagsfræðideild HÍ.