Viku hjúkrunar á Landspítala sem staðið hefur frá 9. maí lýkur föstudaginn 13. maí 2016. Hjúkrunarráð stendur fyrir þessum árlega viðburði þar sem hjúkrun á spítalanum er kynnt á ýmsan hátt, meðal annars með veggspjöldum og fyrirlestrum. Að þessu sinni er hjúkrun einnig kynnt með myndböndum sem birtast á vef spítalans meðan kynningarvikan stendur yfir
Steinunn Rut Guðmundsdóttir ákvað að láta ekki staðar numið að loknu námi í hjúkrunarfræði. Hún bætti við ljósmóðurfræði og starfar á meðgöngu- og sængurlegudeild á Landspítala.