Vika hjúkrunar er á Landspítala 9. til 13. maí 2016. Hjúkrunarráð stendur fyrir þessum árlega viðburði þar sem hjúkrun á spítalanum er kynnt á ýmsan hátt, meðal annars með veggspjöldum og fyrirlestrum. Að þessu sinni er hjúkrun einnig kynnt með myndböndum sem birtast á vef spítalans meðan kynningarvikan stendur yfir
Edythe Laquindanum Mangindin er hjúkrunarfræðingur á hjartadeild. Hún er frá Bandaríkjunum. Það var aldrei ætlunin hjá henni að fara í hjúkrunarfræði en það fór samt svo. Hér segir hún frá því og hvað felst í starfi hennar á hjartadeild.