Vika hjúkrunar er á Landspítala 9. til 13. maí 2016. Hjúkrunarráð stendur fyrir þessum árlega viðburði þar sem hjúkrun á spítalanum er kynnt á ýmsan hátt, meðal annars með veggspjöldum og fyrirlestrum. Að þessu sinni er hjúkrun einnig kynnt með myndböndum sem birtast á vef spítalans meðan kynningarvikan stendur yfir
Árni Már Haraldsson er hjúkrunarfræðingur og jafnframt deildarstjóri gjörgæslunnar á Landspítala Hringbraut. Árni Már segir frá hvers vegna hann ákvað að gerast hjúkrunarfræðingur og lýsir því í hverju starf hjúkrunarfræðings á gjörgæslu felst og af hverju hann ákvað að vinna á Landspítala.