Einar Stefán Björnsson, yfirlæknir meltingarlækninga, er heiðursvísindamaður Landspítala árið 2016. Honum hlotnaðist sá heiður á Vísindum á vordögum, árlegri vísindadagskrá í Hringsal á Landspítala Hringbraut, 26. apríl 2016.
Einar lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1989 og sérfræðiprófi í lyflækningum 1993 og meltingarlækningum 1995 frá Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg. Lauk doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla 1994 og var post-doc Research Fellow í Ann Arbor, Michigan við University of Michigan 1996-1997. Vann síðan á Sahlgrenska frá 1997-2008 en var við John Radcliffe Hospital Oxford í Bretlandi árið 2001. Árið 2006 var hann settur prófessor við læknadeild Gautaborgarháskóla. Var gestaprófessor við Mayo Clinic í Rochester í Minnesota 2006 og 2008-2009. Var einnig gestaprófessor í rannsóknarleyfi við NIH, í Bethesda í Maryland 2014-2015.
Tók við yfirlæknisstöðu í meltingarlækningum á Landspítala árið 2009 og samtímis prófessorsstöðu í sömu grein við Háskóla Íslands. Einar hefur sýnt lyfjamálum áhuga lengi. Var formaður lyfjanefndar um notkun lyfja við meltingarsjúkdómum í Gautaborg frá 1999-2007. Einar var einnig formaður lyfjanefndar Landspítala 2010-2014. Einar er „executive“ ritstjóri Scandinavian Journal of Gastroenterology frá 2013.
Einar hefur verið virkur í vísindastörfum og birt meira en 200 greinar og einnig fjölda bókakafla, sjúkratilfelli og ritstjórnargreinar. Hann hefur verið leiðbeinandi 7 einstaklinga sem varið hafa doktorsritgerðir auk fjölda meistara- og læknanema í rannsóknarverkefnum. Hann hefur kynnt meira en 300 ágrip á alþjóðlegum vísindaráðstefnum og haldið fjölda boðsfyrirlestra. Einar hefur samkvæmt Google Scholar meira en 12.300 tilvitnanir (h-index 65).

Rannsóknir Einars eru af margvíslegum toga. Doktorsritgerðin var á sviði hreyfinga í efri hluta meltingarvegar (e. Gastrointestinal motility). Eftir það beindust rannsóknir hans um skeið að starfrænum kvillum í meltingarvegi en síðan að ýmsum lifrarsjúkdómum. Mikil áhersla var og er lögð á klínískar rannsóknir á lifrarskaða af völdum lyfja en einnig á notkun og ávanabindandi eiginleika prótónupumpuhemla.