„Fjölskylduhjúkrunarmeðferð á barnadeildum“ er yfirskrift doktorsritgerðar Önnu Ólafíu Sigurðardóttur í hjúkrunarfræði sem hún ver föstudaginn 29. apríl 2016 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Athöfnin hefst kl. 14:00.
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að hanna, þróa og prófa fræðslu- og stuðningsmeðferð fyrir fjölskyldur barna á barnadeildum. Rannsóknin byggir á fjórum ritrýndum greinum. Í fyrsta lagi var markmiðið að þróa fræðslu- og stuðningsmeðferð á veraldarvefnum fyrir fjölskyldur barna með krabbamein, meta gagnsemi viðkomandi heimasíðu og kanna áhrif meðferðarinnar á lífsgæði út frá sjónarmiðum barna og foreldra. Í öðru lagi að meta ávinning af tveimur meðferðarsamræðum við foreldra barna með astma hvað varðar fjölskyldustuðning og lífsgæði barnanna. Í þriðja lagi að kanna hvort fræðsla og þjálfun í aðferðum fjölskylduhjúkrunar fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður á kvenna- og barnasviði hefði áhrif á starfsálag, sjálfstæði í starfi, starfsánægju og stuðning á vinnustað. Að lokum var fjórða markmið rannsóknarinnar að kanna hvaða þættir spá fyrir um ánægju með heilbrigðisþjónustuna meðal foreldra barna og unglinga, sem fengu þjónustu á barnadeildum kvenna- og barnasviðs Landspítalans.
Ein af forsendum rannsóknarinnar var sú að alvarleg veikindi barna eða unglinga hafa áhrif á alla innan fjölskyldunnar. Megin niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að foreldrar barna með krabbamein voru ánægðir með heimasíðuna og þótti hún gagnleg og hjálpleg. Mæður barna með astma í tilraunahópi upplifðu marktækt meiri stuðning eftir fræðslu- og stuðningsmeðferðina. Auk þess fundu börnin, sem áttu foreldra sem tóku þátt í fræðslu- og stuðningsmeðferðinni, einnig til minni astma einkenna eftir fræðslu- og stuðningsmeðferðina sem foreldrarnir fengu, samanborið við börn foreldra í samanburðarhópi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu einnig í ljós að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður sem töldu sig upplifa aukið starfsálag og hafa litla stjórn á aðstæðum mátu stuðning frá yfirmönnum og samstarfsfólki marktækt meiri ef þær höfðu farið á námskeið í fjölskylduhjúkrun. Að lokum spáði fjölskyldustuðningur marktækt fyrir um ánægju foreldra með heilbrigðisþjónustuna. Þessar niðurstöður ættu að vera hjúkrunarfræðingum, og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum, hvatning til að halda áfram að þróa og innleiða fræðslu- og stuðningsmeðferð á barnadeildum og stuðla að því að þessi heilbrigðisþjónusta verði partur af hefðbundinni þjónustu og starfsháttum barnadeilda.
Anna Ólafía hefur starfað á Barnaspítala Hringsins frá 1987, lengst af við stjórnun en nú síðustu ár sem kennslustjóri, klínískur lektor og sérfræðingur í barnahjúkrun.