Á nýafstöðnu Sameiginlegu vísindaþingi Skurðlæknafélags Íslands, Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands, Félags Fæðinga- og kvensjúkdómalækna og Fagdeilda skurðstofu- og svæfingahjúkrunarfræðinga var haldin keppni um besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema. Fimm erindi voru valin af þeim 40 sem send voru inn á þingið og kepptu þau um Heiðursverðlaun Jónasar Magnússonar, prófessors. Sigur úr býtum bar Rósamunda Þórarinsdóttir, læknanemi á 3ja ári, fyrir verkefnið Árangur magahjáveituaðgerða á Íslandi árin 2001-2015 en leiðbeinendur hennar voru skurðlæknarnir Björ Geir Leifsson og Hjörtur Gíslason. Þetta er í fyrsta skipti sem 3ja árs læknanemi vinnur þessi verðlaun.
Þingið var mjög vel sótt og gekk vel í alla staði.
Þingið var mjög vel sótt og gekk vel í alla staði.
Á myndinni má sjá frá vinstri; Einar Stefán Björnsson, prófessor og formann dómnefndar, Einar Teit Björnsson deildarlækni á LSH, Hannes Halldórsson læknanema á 4. ári, , sigurvegarann Rósamundu Þórarinsdóttur læknanema á 3. arí, Kristín Maríu Guðjónsdóttur, kandidat á LSH, Elvu Dögg Brynjarsdóttur deildarlækni á Sjúkrahúsi Akureyrar, auk Kristín Huld Haraldsdóttur, sem var stýrði athöfinni en Kristín var kosin formaður Skurðlæknfélags Íslands á þingu, önnur kvenna.