Ólafur G. Skúlason hefur verið ráðinn deildarstjóri á skurðstofum í Fossvogi frá 1. apríl 2016.
Ólafur lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 2006, diplóma í skurðhjúkrun frá HÍ árið 2012 og leggur nú stund á meistaranám í skurðhjúkrun. Hann hefur víðtæka reynslu innan heilbrigðiskerfisins sem sjúkraliði, sjúkraflutningamaður, almennur hjúkrunarfræðingur og skurðhjúkrunarfræðingur en hefur frá árinu 2013 starfað sem formaður og framkvæmdastjóri Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.