Sprengingar hefjast í jarðvinnu við sjúkrahótelið á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 10. mars 2016. Sprengt verður kl. 16:10.
Frá föstudegi 11. mars og alla virka daga er stefnt að sprengingum um kl. 12:10, 16:10 og 17:30. Tímasetningar geta þó breyst.
Fyrir hverja sprengingu verður gefið slitrótt hljóðmerki.
Samfellt hljóðmerki verður svo gefið eftir að sprengt hefur verið þegar hætta er liðin hjá.
Hér er hægt að lesa um jarðvegsframkvæmdirnar og meðal annars hvernig staðið er að sprengingum