Sjá nánar hér.
Nauðsynlegt er að skrá alla nemendur í nám á Landspítala. Í nemakerfinu kemur fram hvenær og hvar á spítalanum nemendur eru í námi og haldið utan um að nemandi hafi undirritað þagnarheit og reglur um notkun sjúkraskrárupplýsinga. Tölvuaðgangur er veittur og auðkenniskort útbúin samkvæmt upplýsingum úr kerfinu.
Nemendur sem koma inn á spítalann í skipulagt nám, t.d. frá Háskóla Íslands, eru skráðir samkvæmt upplýsingum þaðan og leitast er við að afgreiða öll undirskriftar- og aðgangsmál áður en nemendur koma inn á spítalann. Nauðsynlegt er að tilkynna um nemendur sem koma á eigin vegum eða á annan hátt inn á spítalann (sjá neðar).
Nemendur hafa verið skráðir í nemaskráningarkerfið síðan árið 2010. Árið 2014 voru 1.607 nemendur skráðir, árið 2013 voru það 1.530 nemendur, árið 2012 voru 1.532 nemendur, 1.359 árið 2011 og fyrsta árið voru 1.193 nemendur skráðir. Fjölgun nemenda er fyrst og fremst vegna aukinnar vakningar á mikilvægi skráningarinnar.
Upplýsingar varðandi skráningu nema, gátlisti, þagnarskylduskjöl o.fl.
Upplýsingar og umsóknarform fyrir íslenska nemendur sem eru í námi erlendis
Upplýsingar og umsóknarform fyrir erlenda nemendur
Upplýsingar um skráningu nemenda og aðgangsmál
Sigrún Ingimarsdóttir, verkefnastjóri á menntadeild, vísinda- og þróunarsviði Landspítala,
sigruni@landspitali.is,
sími 543 1475.