Öryggi sjúklinga með sjúkdóma í æðakerfi heila- og taugakerfis eykst til muna með þessari nýju starfsemi.
Samningurinn nær til þjónustu fyrir sjúkratryggða einstaklinga sem þurfa á þessum aðgerðum að halda. Fyrst um sinn munu erlendir sérfræðingar koma hingað til lands og vera starfsfólki æðaþræðingardeildar spítalans innan handar með aðstoð meðan þjónustan er að festa sig í sessi.
Með staðfestingu ráðherra hefur samningurinn tekið gildi og Landspítala gert kleift að hefjast handa við að veita þessa þjónustu hér á landi. Búist er við að fyrsta aðgerðin verði á spítalanum í mars 2016. Auk kostnaðar sem fellur á Landspítala er kostnaður Sjúkratrygginga Íslands við samninginn áætlaður tæpar 100 milljónir króna. Það er þó gert ráð fyrir að samningurinn leiði til umtalsverðrar lækkunar á kostnaði þegar á heildina er litið þar sem aðgerðirnar verða nú hér á landi og ekki þarf að senda sjúklinga utan.
Heilaaðgerðir með þræðingartækni gerðar á Íslandi
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samning milli Sjúkratrygginga Íslands og Landspítala um að farið verði af stað með aðgerðir þar sem heilaæðagúlum er lokað með æðaþræðingartækni. Slíkar aðgerðir voru í sumum tilfellum gerðar á Íslandi fyrir um áratug síðan af erlendum sérfræðingum en undanfarin ár hefur hluti sjúklinga verið sendur erlendis. Nýr tækjabúnaður og ráðning sérhæfðs læknis á röntgendeild Landspítala gerir mögulegt að færa þessa þjónustu til Íslands. Árlega hafa um 6 til 8 sjúklingar verið sendir til útanda í meðferð en aðrir undirgengist opna skurðaðgerð hérlendis.