Frá Landspítala vegna inflúensunnar:
Inflúensan er enn í vexti. Áfram er því mikið álag á Landspítala og ástæða til að brýna fyrir fólki að leita til heilsugæslunnar eða Læknavaktarinnar fremur en bráðamóttöku. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu og Læknavaktin hafa aukið viðbúnað sinn vegna stöðunnar.
Landspítali vill þó leggja áherslu á að fólk sem telur sig þurfa að leita til bráðamóttökunnar geri það.