Inflúensufaraldurinn er nú óðum að ná flugi. Inflúensutilfellum hefur fjölgað hratt undanfarna tvo sólarhringa og álag á Landspítala orðið mikið vegna þessa, bæði á bráðamóttöku og eins á legudeildunum. Mjög brýnt er að fólk leiti ekki á bráðamóttökurnar nema nauðsyn beri til.
Gerðar hafa verið sérstakar ráðstafanir á Landspítala til að reyna að bregðast við aukinni þörf. Legurými eru af skornum skammti, enda nýting legurýma þegar um 100%, áður en flensufaraldurinn skall á.