Frá sýkingavarnadeild Landspítala:
Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala greinir mikla aukningu í komu sjúklinga með inflúensulík einkenni. Þeim sem hafa greinst er einnig að fjölga, eins og sjá má á grafinu hér að neðan. Fjöldinn hefur nú tvöfaldast milli vikna.
Algengasti stofninn í faraldrinum nú er inflúensa A H1 N1 2009 en einnig hafa greinst nokkur tilfelli af inflúensu B. Bóluefnið virðist vernda vel gegn A hlutanum, aðeins óljósara er með B hlutann.Inflúensan smitast með snertismiti og mögulega með dropasmiti (hósti eða hnerri).
Einkennalausir eða einkennalitlir einstaklingar geta verið smitandi.
Meðgöngutíminn er yfirleitt 2-3 dagar en getur verið 1-4.
Einkennin eru hár hiti, beinverkir, öndunarfæraeinkenni og jafnvel ógleði, uppköst og niðurgangur (algengast hjá börnum)
Sjúklinga með staðfesta inflúensu má einangra saman ef ekki er möguleiki á einbýli.
Leiðbeiningar um notkun á veirulyfjum koma á morgun frá sóttvarnarlækni.
Mikilvægt er að aðstandendur sem eru með öndunarfæraeinkenni eða uppköst/niðurgang láti vera að heimsækja ættingja og vini á Landspítala meðan einkennin ganga yfir þar sem sjúklingar hafa lent í því að smitast af sínum veiku aðstandendum.
Fjöldi sjúklinga (óháð innlögn) sem greindust með flensu á LSH
veturinn 2015-2016, eftir veirustofnum.