Frá verktaka við jarðvegsvinnu vegna byggingar sjúkrahótels á Landspítala Hringbraut:
Í febrúar 2016 er unnið við jarðvinnu, fleygun og uppúrmokstur.
Byrjað verður að vinna af meiri krafti fyrir lagnir í lok þessa mánaðar en við erum aðeins byrjaðir.
Fyrsta steypa fyrir tækni- og umferðargöngum verður í kringum 24. þessa mánaðar.
Opnað verður fyrir aðalinngang kvennadeildar Landspítala þann 19. þessa mánaðar
Unnið er við fleygun alla virka daga frá kl. 8:00-18:00, ekki er fyrirhugað að sprengja. Tími verktaka við jarðvinnu og fleira sem ekki flokkast undir hávaða er kl. 08:00 til 20:00 virka daga og 8:30-16:00 á laugardögum.