Sigurður Guðmundsson, sérfræðilæknir í smitsjúkdómalækningum, hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi klíníska kennslu í starfi á Landspítala 2015. Var það í níunda sinn sem slík viðurkenning er veitt og í þriðja sinn sem Sigurður hlýtur hana.
Læknakandídatar á Landspítala tilnefndu alls 60 lækna og 22 deildir / teymi þegar þeir kusu um það hver hlyti kennsluverðlaun kandídata að þessu sinni. Voru viðurkenningarnar afhentar í nýárskaffi fyrir kandídata þann 14. janúar 2016. Smitsjúkdómadeild A7 á Landspítala Fossvogi hlaut viðurkenningu fyrir að skara fram úr í kennslu kandídata og tók Bryndís Sigurðardóttir, yfirlæknir í smitsjúkdómalækningum, við viðurkenningunni. Var þetta í fimmta sinn sem þessi viðurkenning er veitt og í annað sinn sem smitsjúkdómadeildin hlýtur hana.
Af öðrum læknum sem tilnefndir voru má nefna Örnu Guðmundsdóttur, sérfræðing í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum, Hjalta Má Björnsson, sérfræðing í bráðalækningum, Ingu Sif Ólafsdóttur, sérfræðing í lungnalækningum, og Ólaf Guðlaugsson, sérfræðing í smitsjúkdómalækningum. Deildir sem mætti nefna eru bráðamóttakan í Fossvogi og hjartalækningadeild 14EG við Hringbraut.
Myndir:
Sigurður Guðmundsson hlaut kennsluverðlaun kandídata 2015 sem einstaklingur og Bryndís Sigurðardóttir, dóttir hans, tók við kennsluverðlaunum fyrir hönd smitsjúkdómadeildar A7.
Kandídatar á Landspítala í nýárskaffi 14. janúar 2016.