Í 6 ár hafa Sambíóin boðið börnum á Barnaspítala Hringsins upp á kvikmyndasýningu á öskudegi og svo var enn nú 10. febrúar 2016. Þetta var alvöru bíó í flottum græjum sem Sonik tækjaleigan bauð upp á. Það var allt fljótandi í poppi og nóg sælgæti frá Ölgerðinni, Nóa Síríusi og Góu. Alveg eins og það á að vera í bíó. Myndin sem var sýnd er ný, það er verið að sýna hana í kvikmyndasölum Sambíóanna,
„Úbbs! Nói er farinn ..“