Ráðstefnan verður í húsnæði hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands í Eirbergi.
Ráðstefnan er samstarfsverkefni Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, fagdeildar í öldrunarhjúkrun og fagráðs í öldrunarhjúkrun á Landspítala. Þar gefst tækifæri til þess að kynna rannsóknir og gæðaverkefni.
Beðið er um útdrátt að veggspjaldi eða erindi sem tekur 20 mínútur í flutningi (spurningar meðtaldar) eigi síðar en 16. febrúar á tölvupóstföngin elfathg@hi.is og margbjo@hi.is.
Útdráttur á að vera samfelldur texti, að hámarki 250 orð í Times New Roman 12 pt. letri, línubil 1 og þarf titill og nöfn höfunda(r) að koma skýrt fram. Uppbygging: Inngangur, aðferð, niðurstöður og ályktanir.
Fyrir hönd fagráðs í öldrunarhjúkrun
Ingibjörg Hjaltadóttir
Fyrir hönd fagdeildar í öldrunarhjúkrun
Margrét Björnsdóttir
Fyrir hönd Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Kristín María Þórðardóttir
Fyrir hönd hjúkrunarfræðideildar Elfa Þöll Grétarsdóttir