Minnt er á að aðalinngangur Barnaspítala Hringsins er í þrjár vikur frá 25. janúar 2016 jafnframt aðalinngangur kvennadeilda á Landspítala.
Ástæðan er jarðvegsframkvæmdir í aðdraganda byggingar sjúkrahótels. Ekið er inn að spítalanum frá gömlu Hringbraut og gjaldskyld bílastæði eru í næsta nágrenni við innganginn. Jafnframt er minnt á það að innkeyrslan frá Barónsstíg verður lokuð til vors.