IKEA hefur fært Barnaspítala Hringsins yfir 200 mjúkdýr til að gleðja skjólstæðinga spítalans.
Frá árinu 2003 hafa í „mjúkdýraleiðangri IKEA Foundation“ safnast 88 milljónir evra fyrir Save the Children og UNICEF og með fénu verið hægt að hjálpa varnarlausum börnum víða um heim að sækja skóla. Féð hefur einnig verið notað til að þjálfa kennara, kaupa kennslugögn og búa börnum öruggara umhverfi, bæði í skólanum og í samfélaginu almennt.
Í verslun IKEA á Íslandi söfnuðust í herferðinni 10.611 evrur eða 1.506.444 íslenskar krónur. Eins og undanfarin ár bauðst viðskiptavinum einnig að gefa tvisvar með því að láta mjúkdýrið í söfnunarkassa. Þannig söfnuðust yfir 200 mjúkdýr sem voru færð barnaspítalanum. Fulltrúar IKEA afhentu þau 22. janúar 2016.
Per Heggenes, framkvæmdastjóri IKEA Foundation:
„Menntun er ábyggilegasta leiðin úr fátækt. Öll börn eiga rétt á menntun en allt of mörg eru enn útilokuð. Samstarfið við UNICEF og Save the Children í 13 ár hefur gert okkur kleift að taka reglubundið á vandamálinu og fjárfesta í betri menntun fyrir börn í sumum af fátækustu samfélögunum í heimi. Við erum gríðarlega þakklát viðskiptavinum IKEA og starfsfólkinu sem hefur lagt mikið á sig til að gera þetta að veruleika fyrir 12 milljón börn“.