Fjölskylda Guðríðar Pétursdóttir færði blóðlækningadeild 11G á Landspítala Hringbraut 1 milljón króna skömmu fyrir jól 2015. Guðríður lést á deildinni fyrr á árinu. Fénu var ætlað að verja til að bæta aðbúnað sjúklinga og aðstandenda á deildinni.
Starfsfólk deildarinnar tók við gjöfunum og færði gefendum þakkir. Nú er búið að kaupa fyrir féð 3 rafmagns La-Z-Boy stóla og 6 góða stóla með örmum.