Vegna jarðvinnu í aðdraganda byggingar nýs sjúkrahótels á Landspítala Hringbraut verður inngangur kvennadeildahúss lokaður í 3 vikur frá 25. janúar 2016.
Aðalinngangur Barnaspítala Hringsins (á móts við gömlu Hringbrautina) verður aðalinngangur kvennadeilda á lokunartímanum. Leiðin frá anddyri barnaspítalans að lyftu á jarðhæð kvennadeildahúss verður merkt með skiltum og örvum.
- Innkeyrsla að Landspítala Hringbraut frá Barónsstíg er lokuð. Ný innkeyrsla verður opnuð á árinu 2016 lítið eitt ofar við Barónsstíg en sú sem áður var.
- Í stað gjaldskyldra bílastæða sem voru við K-byggingu og kvennadeildahús hefur bílastæðum verið fjölgað neðan við aðalbygginguna, nálægt aðalinngangi barnaspítalans.
- Öll bílastæði neðan aðalinngangs spítalans (Kringlunnar) að gangstígnum upp að miðri aðalbyggingunni eru gjaldskyld.