Starfsfólk á leið í og úr vinnu gat gætt sér á heitu súkkulaði og ýmsu góðgæti í jólastemningu í anddyri kvennadeilda og barnaspítala.
Þetta er árlegur viðburður á kvenna- og barnasviði sem mælist vel fyrir hjá starfsfólki og öðrum sem eiga leið hjá.
Ljósmyndir: Yfirljósmæður og deildarstjórar kvenna- og barnasviðs buðu upp á heitt súkkulaði 17. desember 2015.