Frestur til að skila ágripum um rannsóknir og verkefni sem æskilegt er að tengist þema Bráðadagsins 2016, „Bráðveikir á nýjum spítala”, rennur út 15. janúar.
Ágrip geta fjallað um bráð veikindi innan sem utan sjúkrahúsa, umhverfi og öryggi sjúklinga eða verkferla í bráðaþjónustu. Sérstaklega er óskað eftir kynningum um rannsóknarniðurstöður og verða slík ágrip ritrýnd og birt í fylgiriti Læknablaðsins.