Gjaldskyld bílastæði á Landspítala Hringbraut eru nú öll neðan við aðalinnganginn (Kringluna). Þessi gjaldskyldu bílastæði eru milli aðalinngangsins og kvennadeildahússins og niður að barnaspítalanum og gangstígnum sem liggur upp að miðri aðalbyggingunni.
Gjaldskyldu bílastæðunum sem verið hafa við kvennadeildahús og K-byggingu hefur verið lokað vegna jarðvegsframkvæmda í aðdraganda byggingar sjúkrahótels.
Það sést vel hvar gjaldskyldu bílastæðin á Landspítala Hringbraut eru ef smellt er á kortið til hægri og myndin stækkuð.